Lúpínuseyðið er gert samkvæmt uppskrift Ævars Jóhannessonar, en hann og fjölskylda hans framleiddu seyðið og gáfu fólki, einkum krabbameinssjúklingum, í ríflega tvo áratugi. Víst er að fáir hafa lagt eins ríkulega til samfélagsins á þessu sviði í sjálfboðavinnu.

Fyrirtækið Svarti Haukur er framleiðandi lúpínuseyðisins, en Ævar hefur verið okkur afar hjálplegur í undirbúningnum og miðlað af fróðleik sínum. Við vonum því að seyðið geri fólki eins gott og það hefur gert síðustu tvo áratugi enda í einu og öllu farið eftir upphaflegu uppskriftinni. (Reyndar höfum við aðeins bragðbætt það.)

Í æviminningum Ævars, sem komu út í bókinni ,,Sótt á brattann”  árið 2007 og gefin var út hjá Bókaútgáfunni Skjaldborg -  og á þessari vefsíðu - er að finna magnaðar sögur af fólki sem hefur haft gott af seyðinu. Hér verður ekkert fullyrt. Fólk verður að meta sjálft hvaða leiðir það vill fara, hverju það vill trúa og og hvað það vill prófa.

Við hjá Svarta Hauki erum ekki sérfræðingar í framleiðslu á jurtaseyðum eða í náttúrulækningum. Við getum hins vegar farið eftir uppskriftum og komið hollustuvörum á framfæri þannig að fólk geti nálgast þær með auðveldum hætti. Við höfum rekið Ávaxtabílinn til  fjölda ára og haft frumkvæðið að margvíslegum nýjungum í framboði á hollum mat. Ávaxtabíllinn var m.a. heiðraður með Fjöregginu árið 2008 en það eru einskonar “fyrirtæki ársins” viðurkenning  í matvælageiranum.

Nýlega stofnuðum við svo fyrirtækið Barnavagninn, en starfsemi hans fer fram Garðinum. Framleiðslan snýst um ferskan íslenskan barnamat, sem gerður er úr ávöxtum og grænmeti og meðhöndlaður þannig að virkni hráefnisins haldist í vörunni en sé ekki afklædd með niðursuðu eins og þekkist í innfluttum barnamat.

Við höfum semsagt brallað ýmislegt í gegnum tíðina og ekki alltaf borið mikið úr bítum.  Það er hins vegar alveg ljóst, að ef við högnumst, þá hagnast aðrir í leiðinni því okkar vörur gera fólki gott.

Með von um góða heilsu.
Haukur Magnússon framkvæmdastjóri.